
Listamenn
07 · Skynjunarleikur
Pláneta
Pláneta er lítið fjölskyldufyrirtæki rekið af Joriku og Sigurði, áhugafólki um skynjunarleik. Frá fæðingu frumburðarins höfðum við mikinn áhuga á að læra um mismunandi leiki barna og ekki leið á löngu þar til við uppgötvuðum skynjunarleik og ný ástríða kviknaði. Ferðinni er stjórnað af litlu Hnetunni okkar, en það er einmitt hún sem hefur kennt okkur mest og er ástæðan fyrir því að Pláneta varð að veruleika.

