SIP & PAINT
SIP & PAINT
Í samstarfi við Ægir220

SIP & PAINT kvöldin í Íshúsinu eru skapandi viðburðir fyrir alla — byrjendur og lengra komna. Undir leiðsögn Júlíusar og Hafliða málar þú þitt eigið verk í notalegu andrúmslofti, með góðan drykk frá Ægir220 í hönd. Efni og áhöld eru ekki innifalin — fólk þarf að koma með eigið hráefni og málningar áhöld.
Hvenær
Annað hvert þriðjudagskvöld. Húsið opnar kl. 18:00, málunin hefst þegar hentar og stendur til kl. 22:00.
Dagsetningar
8 kvöld fram að áramótum.
- 01þri. 8. september 202619:30–21:30
- 02þri. 22. september 202619:30–21:30
- 03þri. 6. október 202619:30–21:30
- 04þri. 20. október 202619:30–21:30
- 05þri. 3. nóvember 202619:30–21:30
- 06þri. 17. nóvember 202619:30–21:30
- 07þri. 1. desember 202619:30–21:30
- 08þri. 15. desember 202619:30–21:30
Stjórnendur

Júlíus Hafsteinn
Stjórnandi & málari
Júlíus Hafsteinn er íslenskur málari sem vinnur fyrst og fremst með landslag og portrett. Innblástur hans kemur úr náttúrunni, sögu og rómantískri heimsýn 19. aldar, þar sem listin er leið til að birta fegurð og sannleika. Hann leiðir gesti í gegnum sköpun með áherslu á innsæi, tækni og gleði í málinu.

Hafliði Ingason
Stjórnandi & málari
Hafliði Ingason er íslenskur myndlistarmaður og málari þekktur fyrir tjáningarrík olíumálverk sem eru innblásin af náttúru, minningum og tilfinningalegu andrúmslofti. Verk hans sameina draumkennda litapallettu og lífræn form og skapa umlykjandi upplifun fyrir áhorfendur.
Hvað þarf að taka með
- Eigið málningarefni og áhöld
- Tiltekið efni (dúkur, viðarplata, blað o.s.frv.)
- Góða skapið

