Íshús Hafnarfjarðar
/
Margrét Oddný Leópoldsdóttir
Listamenn

12 · Myndlist & hönnun

Margrét Oddný Leópoldsdóttir

Margrét Oddný Leópoldsdóttir sinnir myndlist, stærðfræðieinkatímum, fræðslu um einhverfu og hugleiðingum um allskonar, auk hlaðvarps í samstarfi við fleiri. Áður var hún virk í Gigtarfélaginu og MG félagi Íslands, rak sýningaplássið Heima er best, hannaði boli í samstarfi við Leópold Kristjánsson undir merki hans Leopold's Royal T-shirt Company sem seldir voru í Ósóma, kenndi kransagerð, rak verslunina Skúmaskot í samstarfi við aðra hönnuði og listakonur, hannaði heimilisvörur undir merkinu Gola & Glóra, kenndi fatahönnunarnemum LHÍ textílþrykk og stundaði lækningar á Landspítalanum og St. Jósepsspítala í Hafnarfirði. Þegar heilsan leyfir tekur hún stundum aftur upp þráðinn í sumu af því sem talið er upp.