Íshús Hafnarfjarðar
/
Linn Janssen
Listamenn

21 · Myndskreytir

Linn Janssen

Linn Janssen er myndskreytir frá Hamborg sem býr og starfar á Íslandi. Hún leigir litla vinnustofu í Íshúsi Hafnarfjarðar — gamalli fiskvinnslu — þar sem hún ver dögunum við að mynda sögur fyrir börn, halda myndlistarsmiðjur og skipuleggja reglulega lífteiknikvöld í Hafnarfirði. Hún vinnur mest með hefðbundnum miðlum, blandar saman gvasslitum, lituðum blýöntum og klippimyndum úr ótrúlegu safni dagblaða og tímarita. Verk hennar eru full af smáatriðum, hlýjum húmor og innblæstri frá íslenskri náttúru og hversdagsfólki. Linn hefur myndskreytt bækur fyrir íslenska höfunda og útgefendur og var meðal annars tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur 2024 fyrir „Einstakt Jólatré“ (Benný Sif Ísleifsdóttir, Forlagið) og til Íslensku bóksalaverðlaunanna 2025 fyrir „Árstíðarverur“ (Diljá Hvannberg Gagu, Salka). Hún hefur tvívegis hlotið menningarstyrk Seðlabanka Íslands kenndan við Jóhannes Nordal.