
Listamenn
40 · Trésmíði
Sindri Snæsson
Sindri Snæsson er trésmiður og handverksmaður sem vinnur á mörkum hefðbundinnar húsgagnasmíði og samtímalegrar hönnunar. Innblástur sækir hann meðal annars í íslenska alþýðuhúsgagnahefð, þar sem einföld form, sterkbyggð smíði og ríkuleg málningarlög gefa hverjum grip sérstakan karakter og áferð. Sindri smíðar húsgögn og nytjahluti í litlu upplagi eða eftir sérpöntun og vinnur meðal annars endatrés-skurðarbretti þar sem eiginleikar og mynstur viðarins fá að njóta sín. Verk hans bera með sér virðingu fyrir gömlu handverki en eru ekki eftirlíkingar fortíðar — þau endurtúlka íslenska smíðahefð með persónulegu og nútímalegu yfirbragði.

