
Listamenn
30 · Málaralist
Unnur Guðný María Gunnarsdóttir
Unnur Guðný er fædd og uppalin í Reykjavík en vinnustofan er staðsett í Íshúsinu í Hafnarfirði. Hún málar draumkenndar landslagsmyndir sem oft hafa einhvern samhjóm við gömul íslensk ljóð eða þjóðsögur. Hafið, fjöllin, jöklarnir og nátturan öll eru viðfangsefni hennar ásamt því sem hún leitast við að fanga kyrrð og fegurð á strigann. Nafngift og saga hvers verks er einstök. Unnur lærði myndlist í Myndlistaskóla Reykjavíkur og Myndlistaskóla Kópavogs en hefur fengist við myndlist frá unga aldri.


